forsíða /// námskeiðið /// myndir /// dagskrá /// skráning  
     
 
Námskeið í skemmtilegri kvikmyndagerð er fyrir alla unglinga sem hafa áhuga á því að búa eitthvað til sjálfir í stað þess að horfa alltaf á kvikmyndir og vídeó eftir aðra.

Ef þú hefur áhuga á því að teikna, áhuga á tónlist, kvikmyndum, hönnun, leik, dansi, o.s.frv., þá er þetta málið fyrir þig!

Með hjálp kennaranna gerir þú þína eigin kvikmynd alveg eftir þínu höfði. Sköpunargleði er töfraorðið!