kvikmyndagerð
/ Mummi & Nael


Kristinn Pétursson hefur gert stutta heimildamynd um ungu Palestínumennina Mohammed og Nael sem eru hvort tveggja trúðar og sjálfboðaliðar. Þeir hafa til skamms tíma starfað á Íslandi fyrir Rauða krossinn og aðstoðað börn palestínskra flóttakvenna sem settust að á Akranesi haustið 2009.

Í kvikmyndinni ræða þeir Mummi og Nael um lífið í Palestínu og á Íslandi, sjálfboðastarfið, trúðsskapinn og palestínubörnin.

Framleiðandi: Mínerva kvikmyndagerð
Kvikmyndagerð: Kristinn Pétursson
Lengd: 10.05 mín.
Sýnd: Frumsýnd á netinu í júlí 2011
     
hönnun | vefir | útgáfa | kvikmyndagerð | um | forsíða
 
MÍNERVA Á Smella til að sjá myndefni Mínervu á Youtube