kvikmyndagerð / þjóðlagasveit

Mínerva - kvikmyndagerð vinnur að gerð heimilda-
kvikmyndar um Þjóðlagasveit Tónistarskólans á Akranesi. Vinnuheiti myndarinnar er STÚLKUR & STRENGIR, en verkefnið hefur hlotið hálfrar milljónar króna styrk frá Menningarráði Vesturlands. Tökur fara fram frá vori 2010 fram á haust 2011.

Þjóðlagasveit Tónlistarskólans á Akranesi hefur með list sinni gert sig mjög svo gildandi í menningarlífi Akraness svo eftir hefur verið tekið. Í þessari heimildarmynd verður leitast við að varpa ljósi á það mikla starf sem fer fram innan sveitarinnar. Fókusinn verður á stúlkurnar sem sveitina skipa, en líka á stjórnandann S. Ragnar Skúlason, stjórn þjóðlagasveitarinnar, foreldra og aðra sem tengjast starfinu, s.s. starfsmenn tónlistarskólans og samstarfsfólk sveitarinnar.

Frumsýning áætluð haustið 2011.

> Sjá plakat
     
 
hönnun | vefir | útgáfa | kvikmyndagerð | um | forsíða
 
MÍNERVA Á Smella til að sjá myndefni Mínervu á Youtube